Garðyrkjustöðin Engi er í Laugarási í Biskupstungum, um 100 km frá Reykjavík. Þar eru ræktaðar kryddjurtir, grænmeti og ávextir, bæði í heitum og köldum gróðurhúsum sem og í útiræktun, og er starfsemin vottuð af vottunarstofunni Túni.
Í júní, júlí og ágúst er starfræktur bændamarkaður á Engi þar sem í boði eru ótal tegundir matjurta úr lífrænni ræktun á góðu verði.
Á Engi er margt að sjá og skynja og gestir markaðarins geta gengið um ilmjurtagarð með íslenskum og erlendum ilm- og matjurtum, virt fyrir sér íslenskar hænur, fengið sér bolla af myntutei og týnst í 1000 fermetra völundargarði úr trjágróðri, hinum eina sinnar tegundar á Íslandi.
Á veturna er hægt að kaupa kryddjurtir frá Engi í verslunum á höfuðborgarsvæðinu.
Eigendur garðyrkjustöðvarinnar frá upphafi eru Ingólfur Guðnason og Sigrún Elfa Reynisdóttir.
Garðyrkjustöðin Engi / Engi Nursery, 801 Selfoss, Iceland / Telephone: 486-8913 / Email: engi@engi.is
You are viewing the text version of this site.
To view the full version please install the Adobe Flash Player and ensure your web browser has JavaScript enabled.
Need help? check the requirements page.